Rings

Fegrunarráð fagfólksins

fegrunarradAllar viljum við líta vel út á brúðkaupsdaginn. Leyndarmálið á bak við geislandi fegurð á stóra deginum er ósköp einfalt: Byrjaðu nógu snemma að undirbúa þig. Ekki vanrækja sjálfa þig þar til síðustu vikuna fyrir brúðkaupið. Hér á eftir gefa fagmenn nokkur fegrunarráð sem gott er að hafa í huga. Gleymdu þó ekki að hamingjan skapar fegurðina – ekki fegurðin hamingjuna!

Best að byrja snemma að huga að húðinni.

Berglind Halldórsdóttir, snyrtifræðingur og framkvæmdastjóri dekursviðs Baðhússins, segir höfuðatriði að konur hugi nógu snemma að því að undirbúa húðina undir stóra daginn þannig að búið sé að hreinsa hana og næra eins og best verður á kosið. Að hennar sögn er nauðsynlegt að leita faglegrar ráðgjafar hjá snyrtifræðingi a.m.k. tveimur til þremur mánuðum fyrir brúðkaupið og fá leiðbeiningar um notkun snyrtivara og meðhöndlun húðarinnar ásamt því að byrja að fara í húðhreinsun og andlitsbað. „Því fyrr sem konur leita sér ráðgjafar, þeim mun meiri árangri er hægt að ná og á það sérstaklega við ef húðvandamál eru til staðar. Húðin getur verið feit, þurr eða rakaþurfi og þá þarf að meðhöndla hana í tæka tíð.“ Berglind segir afar slæmt þegar konur stökkvi til nokkrum dögum fyrir brúðkaupið og fari í húðhreinsun því þá nái húðin ekki að jafna sig í tæka tíð. Sömuleiðis ættu verðandi brúðir að láta ljósaböð eiga sig þremur til fjórum dögum fyrir brúðkaup því þegar húðin verði fyrir útfjólubláum geislum ljósabekkjanna myndist þurrkur í henni. „Þær konur sem kjósa að láta fjarlægja óæskilegan hárvöxt með vaxmeðferð ættu að gera það um fjórum dögum fyrir brúðkaupið. Það sama á við um þær sem fara í litun og plokkun á augabrúnum og augnhárum. Hafi þær hins vegar aldrei látið lita sig áður er vissara að gera það a.m.k. einu sinni nokkru áður, þannig að þær geti gert upp við sig hvort liturinn og lagið á augabrúnunum henti þeim.“ Þá bendir Berglind á að nauðsynlegt sé að næra húðina vel mánuðina fyrir brúðkaupið og ekki megi gleyma að næra varirnar svo þær verði ekki þurrar og sprungnar eða frunsur spretti fram á versta tíma. Hand- og fótsnyrting ætti að eiga sér stað í vikunni fyrir brúðkaupið og ef konur hafa tíma daginn áður sé best að láta lakka neglur þá. „Stressið getur verið mikið í kringum brúðkaupsundirbúninginn og þá vilja húðvandamál láta á sér kræla,“ segir Berglind að lokum. „Gott ráð við því er að fara í slökunarnudd á snyrtistofu og leyfa snyrtifræðingnum að dekra við sig frá toppi til táar.“

Mikilvægt að hirða vel um hárið.

Olga Másdóttir hárgreiðslumeistari og eigandi hárgreiðslustofunnar Hárhönnun. „Verðandi brúðir þurfa fyrst og fremst að byrja á því að panta sér tíma á hárgreiðslustofu með góðum fyrirvara,“ segir Olga Másdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi hárgreiðslustofunnar Hárhönnun, á Skólavörðustíg. „Svo þarf að ákveða hvenær prufugreiðslan á að fara fram. Yfirleitt geri ég hana um leið og ég legg lokahönd á útlit hársins, þ.e.a.s. lita það og klippi í síðasta skipti fyrir brúðkaupið en það er yfirleitt um einni til tveimur vikum áður. Ef ástand hársins er slæmt og það er t.d. þurrt, þarf að gera ráðstafanir til að byggja hárið upp. Við bjóðum upp á mjög árangursríkar olíumeðferðir sem er oft nóg að fara í tvisvar til þrisvar sinnum fyrir brúðkaupið. Einnig er hægt að auka glans hársins með hárlitun eða -skoli. Ef hárið á að vera slegið á brúðkaupsdaginn skiptir mjög miklu máli að það sé fallegt og umhirða þess sé góð. Þær sem vilja prófa nýjan hárlit eða klippingu ættu að gera það tímanlega en í fæstum tilfellum mælum við með því að konur breyti mikið um stíl stuttu fyrir brúðkaup. Eigi hárið að vera uppsett ætti ekki að þvo það rétt fyrir stóra daginn og á þetta sérstaklega við um þær sem eru með sjálfliðað hár. Ég kýs líka að konur með slétt og fíngert hár láti vera að þvo það sjálfar heldur leyfi mér að meta hvort þess þurfi og þvo þeim þá sjálf um hárið. Áður fyrr lenti ég stundum í því að þótt prufugreiðslan hefði gengið vel og konurnar notuðu réttu hárvörurnar þá var hárið e.t.v. allt of lint á brúðkaupsdaginn því þær notuðu of mikið af hárnæringu.“ Olga bendir einnig á að klórinn í sundlaugarvatninu fari illa með hárið og hún ráðleggur verðandi brúðum að forðast sundlaugarnar stuttu fyrir brúðkaup eða nota a.m.k. sundhettu til að hlífa hárinu. En hvað með karlmennina – hvað geta þeir gert til að hlúa að hárinu? „Hvað brúðgumana snertir er gott að þeir komi í klippingu viku fyrir brúðkaupið og láti lita hárið um leið ef þeir kjósa svo. Ég mæli líka með því að þeir komi í olíumeðferð eins og konurnar. Henni fylgir gott axla- og höfuðnudd sem losar um streitu og er gott fyrir líkama og sál. Svo leiðbeinum við verðandi brúðgumum um val á hárvörum og margir þeirra koma einnig við hjá okkur á brúðkaupsdaginn og láta okkur sjá um hárgreiðsluna.“

Höfundur: Heiðdís Lilja
Grein úr Nýju lífi