Gjafalisti

Ekki gleyma eftirfarandi...

Það gleymist oft að setja, eftirfarandi sex atriði, á gjafalistann!...
meira >>
Gjafalisti

Nú til dags láta brúðhjón oft taka saman gjafalista í verslunum til að auðvelda brúðkaupsgestum að finna réttu brúðargjöfina og koma í veg fyrir að gestir velji sömu gjöfina. En þetta er ekki algilt, en ef fólk á erfitt með að finna réttu gjöfina er þetta mjög sniðugt. Stundum er listinn sendur út með boðskortunum en yfirleitt hafa gestirnir samband við foreldra brúðhjónanna sem benda þá á í hvaða verslunum gjafalistarnir séu. Á gjafalistum er gott að hafa hluti á mismunandi verði sem henta fjárhag hvers og eins. Margir nota tækifærið til að velja sér alls kyns spariborðbúnað, t.d. stell, glös, silfur og hnífapör, enda eru flest brúðhjón búin að vera í sambúð í einhvern tíma þegar gengið er í hjónaband og eiga því orðið nauðsynlegustu búsáhöld. Höfundur: Guðbjörg Magnúsdóttir   Tengdar greinar Brúðkaupsveislur  geta verið með ýmsu sniði sem takmarkast einungis af óskum brúðhjónanna ... Kirkjuleg hjónavígsla  fer yfirleitt fram í kirkju og að minnsta kosti tveir ... Borgaraleg gifting  Gifting þarf ekki nauðsynlega að fara fram í kirkju. Þegar par hefur ákveðið að ... ...
meira >>