Brúðarbíll

Brúðarbíllinn

Flest brúðhjón koma akandi á fallega skreyttum bíl til kirkjunnar. Yfirleitt er brúðarbíllinn í einkaeigu einhvers sem þekkir til brúðhjónanna og er tilbúinn til að lána þeim eðalvagn sinn, en ef engin slík bifreið býðst er til dæmis hagt að leita til leigubílastöðva. Einnig eru til bílaleigur sem leigja út eðalvagna og jafnvel er hægt að tala við fornbílaklúbbinn.

  • Athugaðu með bíl í tíma, helst með 8-10 mánaða fyrirvara.
  • Vertu með varabíl til taks er eitthvað skyldi út af bregða. Mundu eftir að panta tíma í tæka tíð til að láta skreyta bílinn.
  • Ef bílinn er leigður ættirðu að fá uppgefið verð áður en þú skrifar undir samninga.
Höfundur: Guðbjörg Magnúsdóttir

Tengdar greinar

  • Gátlisti   Fyrir þá sem vilja hafa allt á hreinu getur verið gott að styðjast við eftirfarandi 12 mánaða skipulag ...
  • Fjárhagsáætlun  Mennirnir eru jafnmisjafnir og þeir eru margir og það sama á við ...
...
meira >>