Vatn og aftur vatn
Líkaminn samanstendur af ýmsum efnum en þrír fjórðu hlutar hans eru vatn. Við þurfum að drekka að minnsta kosti 8 glös á dag til að líkaminn geti sinnt starfi sínu eðlilega. Fái líkaminn ekki þetta vatnsmagn bregður hann á það ráð að taka vatn frá líffærum á borð við ristilinn, sem getur haft slæmar afleiðingar í för með sér. Mælingar sýna þessu til stuðnings að í 90% tilfella orsakast harðlífi af vatnsskorti. Líkaminn...
Vítamín - spurningar og svör Hvernig er hægt að þekkja vítamínskort? Það er ekki eins auðvelt og margir halda. Þreyta, einbeitingarleysi og endurteknar sýkingar geta verið merki um vítamínskort en þetta eru einnig einkenni sem geta átt við margt annað. Best er að fá úr því skorið hvort um vítamsínskort sé að ræða með því að fara í læknisrannsókn eða blóðprufu og fá um leið upplýsingar um hvaða vítamín það séu sem líkamann skortir.
Geta vítamín haft fyrirbyggjandi...
A-vítamín
Utan úr heimi berast þær fréttir að verið sé að gera ýmsar rannsóknir á a-vítamíni sem ber hið latneska heiti retinol. Þetta vítamín hefur verið svolítið í skugganum fyrir B-, C- og E-vítamíni, en nú virðist eins og það sé að breytast.
Þær vísindarannsóknir sem verið er að gera á A-vítamíni snúast m.a. um hugsanlega notkun þess til að bæta sjón aldraðra og styrkja ónæmiskerfið, einnig sem lið í baráttunni við lungnaþembu og sumar...