Kjóllinn - Brúðarkjóllinn og brúðarkjólaleigur

Klæðilegt hálsmál, fyrir mismunandi vöxt.

Vandaðu valið á halsmálinu, með tilliti til hvernig skart þú kemur til með að bera og einnig hvaða hárgreiðsla verður fyrir valinu.

 

Bateau

Þetta háa en flegna hálsmál liggur út á axlirnar og fylgir viðbeininu að framan.
Gott fyrir þær sem hafa beinabera bringu og/eða lítinn barm.
Passar ekki fyrir mikinn barm.

 

Off-The Shoulder

Sýnir vel bringubein og axlir.
Fallegt fyrir barmmiklar konur, sem geta notað hlýralausa brjósthaldara (Glærir hlýrar gætu verið bjargvætturinn hér).
Klæðir ekki breiðar axlir.

 

Halter

Hlýrarnir eru bundnir fyrir aftan hálsinn og oft með alveg beru baki.
Passar þeim sem hafa fallegar axlir.
Klæðir ekki breiðar né litlar axlir og byggir á að ekki þurfi mikinn stuðning undir brjóstin. (Þar gæti lausnin verið glærir hlýrar á brjósthaldarann).

 

Illusion high

Þetta hálsmál byggir á blúndu eða gegnsæju efni sem leggst vel að bringunni og er oftast bryddað með satínrönd sem minnir á “choker” hálsmen. Passar á mjög fína kjóla og er kynþokkafullt á dömulegan hátt.
Sérstaklega góð lausn fyrir beinabera bringu.

 

Portrait

Mjúklega flegið U-hálsmal með fellingu frá öxlum og meðfram að framan og jafnvel að aftan líka.
Sýnir vel fallag viðbein og bringu.
Klæðir ekki þykkan háls og bringu og ekki heldur beinabera.

 

Scoop

Þetta U-línu lagaða hálsmál er lika kallað “ballerina”. Getur verið mikið flegið, ef vill.
Klæðir allann vöxt.

 

Strappy

Hlýrarnir liggja beint frá framstykki og yfir axlirnar í bakstykkið.
Klæðir stinna og fallega handleggi.
Ekki fyrir barmmiklar konur.

 

Square

Alveg þvert og ferkantað.
Sérstaklega fallegt fyrir barmmiklar konur.
Klæðir flestalla.

 

Strapless

Bæði beint og einnig með spíssum til hliðanna.
Klæðilegt fyrir breiðar og þykkar axlir.
Barmlitlar konur, en fylltur brjósthaldari getur bjargað málunum.

 

Sweetheart

Hjartalaga og flegið og dregur athyglina að barminum.
Flottan barm.
Nýtur sín ekki nema að barmurinn sé góður.

...
meira >>
Sniðið á brúðarkjólnum

Sniðið á brúðarkjólnum sýnir líkamsvöxtinn á þessum mikilvægasta degi í lífinu. Þess vegna skiftir höfuðmáli að það klæði þig sem best. 

A-línusniðið

Þetta snið er mest „flatterandi" og þessvegna langvinsælasta brúðarkjólasniðið. Klæðir hávaxnar, jafnt sem lágvaxnar, þéttvaxnar og grannar, mikið vaxnar og sléttvaxnar. A-línusniðið fellur laust frá öxlum og víkkar svolítið alla leiðina að kjólfaldinum.


 

Ballkjóllinn

Hæfir best mikið vöxnum konum. Þröngt mittið er ýmist V-laga, eða beint. Getur verið aðeins ofan við náttúrulega mittislínu og líka aðeins neðar. Pilsið er svo vítt og efnismikið. Þetta snið klæðir hávaxnar konur best.

Empire sniðið

Minnir svolítið á óléttukjólana frá miðri síðustu öld og svo kom Jaqueline Kennedy og notaði mikið kjóla sem Oleg Cassini hannaði á hana með þessu sniði. Mittislínan er rétt undir barminum og þaðan fellur pilsið annaðhvort beint eða með svolítilli A-línu, alveg niður á gólf.

Prinsessusniðið

A-línusnið með fleiri en tveimur langstykkjum, eða innteknum saumum upp og niður. Þetta er heldur „dramatískara”, en venjulegt A-línusnið, en jafna „flatterandi”. Kallar þó á heldur betri vöxt, þar sem prinsessusniðið er jafnan þrengra.

Undirkjólasniðið

Einfalt og glæsilegt. Fylgir líkamanum frá öxlum að kjólfaldi. Oft án hlýra og jafnvel alveg baklaus. Það þarf íþróttakonu eða fyrirsætuvaxtarlag til að þetta snið njóti sín sem best.

Heiðar Jónsson

...
meira >>
Brúðarkjóllinn

Sumar konur velja draumakjólinn löngu áður en þær velja draumaprinsinn. Aðrar þykjast ekki hafa neinn áhuga á svoleiðis pjatti en laumast svo á brúðarkjólaleigurnar í skjóli myrkurs.

Einhverju þarf verðandi brúður a.m.k. að klæðast og flestir brúðarkjólar eru hvítir þótt það sé alls ekki náttúrulögmál. Áður fyrr giftu brúðir sig ekki í hvítu nema þær væru að gifta sig í fyrsta skipti því hvíti liturinn var tákn um sakleysi og hreinleika eða m.ö.o. að brúðirnar væru „óspjallaðar“. Nú til dags eru brúðarkjólar í öllum regnbogans litum, enda fer ekki öllum konum vel að vera í hvítu og er því sjálfsagt að velja þann lit sem hentar útliti hverrar og einnar.

Samkvæmt hjátrúnni ætti brúður að klæðast einhverju gömlu, einhverju nýju, einhverju að láni og einhverju bláu. Hún ætti sömuleiðis aldrei að sauma brúðarkjólinn sjálf því óhöppin í hjónabandinu verða jafnmörg og sporin sem brúðurin saumar sjálf í kjólinn. Brúðguminn má ekki sjá brúðina í fullum skrúða fyrr en til vígslunnar er komið því annað boðar ógæfu. Hann má heldur ekki gefa verðandi brúði sinni brúðarskó annaðhvort notar hún gamla skó eða kaupir þá sjálf.

Brúðarkjóllinn sjálfur
Margar konur panta brúðarkjólinn með allt að árs fyrirvara en yfirleitt er þó nóg úrval á brúðarkjólaleigunum, hvort sem hinar verðandi brúðir skjótast þangað daginn fyrir brúðkaup eða velja draumakjólinn daginn eftir fyrsta stefnumótið. Einnig er hægt að láta sérsauma brúðarkjóla. Verð á sérsaumuðum brúðarkjólum er frá 50 þús. og uppúr. Og leiga á brúðakjólum er frá 18 þús - 38 þús. Mælt er með því að konur máti brúðarkjólinn fyrir giftingardaginn með slöri, skóm og höfuðskrauti.

Snið-ugt!

Konunglega sniðið – er með hárri mittislínu, upp við brjóst, sem er yfirleitt undirstrikuð með saumfari. Hentar t.d. konum með perulaga vöxt og konum sem ekki eru með þvengmjótt mitti. 

A-sniðið – er einfalt snið sem víkkar út að neðan. Frábært fyrir konur með breiðar mjaðmir og undirstrikar mjótt mitti.

Dálkakjóllinn – er eins og nafnið gefur til kynna, beinn og nútímalegur í sniði. Þetta er gott snið fyrir nánast hverja sem er og kjóllinn er sérstaklega heppilegur fyrir ófrískar brúðir.

Ballerínukjóllinn – er ekta ævintýrakjóll með þröngum toppi og mjög víðu pilsi. Fer flestum konum vel en getur þó verið of fyrirferðarmikill ef brúðurin er lágvaxin.

Prinsessukjóllinn – er með aðskornum bol og víkkar örlítið út að neðan. Saumar eru lóðréttir og enginn saumur við mittislínu. Gott snið fyrir konur með perulaga vöxt. 

Hlýralausi kjóllinn – vekur athygli á öxlunum. Snið sem fer flestum konum vel en er sérstaklega flott á íturvöxnum konum með breiðar axlir og brjóst í stærra lagi. 

Tvískiptur kjóll – góður fyrir brúðir sem passa ekki í hefðbundnar stærðir og snið, t.d. ef brjóstastærð þeirra er ekki í „réttu“ hlutfalli við neðri hluta líkamans. Hægt er að fá toppa með spöngum undir brjóstum sem lyfta þeim upp og láta mittið virðast mjórra. 

Skásniðinn kjóll – er frekar aðsniðinn og beinn. Brúðarslóði fer vel með þessu sniði, vilji brúðir vera svo flottar á því. Hentar hávöxnum og grönnum konum einna best.

Höfundur: Heiðdís Lilja
Grein úr nýju lífi

Tengdar greinar

  • Fötin hans  Úrvalið af fötum fyrir brúðgumann er alltaf að aukast. Undanfarið hafa ensk hefðarmannsföt ...
  • Hefðir  Giftingahringurinn er tákn eilífðarinnar. Hann á sér engan endi. Upphaflega ...
  • Hvernig eiga mömmurnar að klæða sig? Það er tilvalið fyrir mæður brúðhjóna að fá sér nýtt dress ...
  • Þarftu að missa nokkur  Ef þig langar til að grenna þig fyrir stóra daginn er gott að byrja snemma ...


 

...
meira >>