Sumarstúlka Vikunnar 1960
Snemma sumars 1960 var tímaritið Vikan með sína eigin fegurðarsamkeppni á forsíðu blaðsins. Þátttakendur voru 5 stúlkur og svo voru það áskrifendur blaðsins sem var dómnefnd keppninnar. Það sem var sérstakt við þessa keppni var það að stúlkan í öðru sæti var nokkrum vikum seinna kjörin Fegurðardrottning Íslands 1960. Þetta varð líka síðasta fegurðarsamkeppnin í Skemmtigarðinum Tívólí. Þeirri keppni verður fljótlega lýst hér á síðunni.
Ágústa Guðmundsdóttir (alnafna hennar var Fegurðardrottning Íslands 1956).
Sigrún Ragnarsdóttir varð Fegurðardrottning Íslands nokkrum vikum eftir að þessi mynd er tekin. Hún varð önnur í þessari keppni.
Hólmfríður Eigilsdóttir varð númer 3.
Sigrún Gissurardóttir varð fjórða.
Sigrún Kristjánsdóttir varð fimmta.
Heiðari sjálfum hefur alltaf þótt Ágústa ein alfegursta kona sem komið hefur nálægt nokkurri svona keppni og hún hefði ábyggilega náð langt á fegurðarsamkeppni erlendis ef hún hefði viljað taka þátt í Fegurðarsamkeppni Íslands. Þessari hugleiðingu til stuðnings varð Sigrún Ragnars fimmta í Miss International 1961.
|