Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Ókrýnda fegurðardrottningin okkar 1974

Árin 1973, 1974 og 1975 var engin Fegurðarsamkeppni haldin á Íslandi. Jafnréttisbarátta kvenna átti hér stærstan hlut að máli. Heiðar Jónsson aðstoðaði Einar A. Jónsson við að finna stúlkur til þátttöku á erlendar keppnir. Þar, sem Miss Universe keppnin, gerði á þessum árum kröfu um að þeirra þáttakendur væru fegurðardrottningar síns heimalands, hafa allaveganna þessar þrjár Fegurðardrottningar ekki verið krýndar, sem slíkar.

Fulltrúinn okkar á Miss Universe 1974 var valin Vinsælasta Stúlkan í keppninni (Miss Unity). Anna
Björnsdóttir varð þekkt fyrirsæta og byrjaði ferilinn í Englandi. Hún flutti fljótlega til Bandaríkjanna og lék í nokkrum kvikmyndum, þar vestra og einnig á  Íslandi.

Anna Björnsdóttir (Anna Bjorn) var valin Miss Unity á Miss Universe keppninni í Manila, á Fillipseyjum 1974. Þessi titill útleggst "Vinsælasta Stúlka Keppninnar" (Mynd: Mbl).

Anna var hvað þekktust fyrir að gera nokkurra ára fyrirsætusamning við Vidal Sassoon hárvörufyrirtækið. Þetta var það flottasta í þá daga og gerði Önnu að þekktu andliti, um allan heim.

Anna á forsíðu Nýs Lífs.

Þetta er grein úr Samúel og þarna er álitið að Anna sé fyrsta Íslenska stúlkan á síðum Playboy. Það er reyndar ekki rétt, því að María Guðmundsdóttir var á sambærilegum myndasíðum hjá þeim, mörgum árum áður. Playboy gerði myndaþátt um Bandarísku keppendurna í sundi á Ólympíuleikum og fékk vinsælar toppfyrirsætur til að kynna baðfatatísku þess árs um leið.

Anna á forsíðu Breska tískublaðsins Petticoat. Þessi mynd er frá fyrstu árunum sem Anna starfaði við fyrirsætustörf.

Þetta er auglýsing úr Morgunblaðinu þegar kvikmyndin "Get Crazy" með Önnu í aðalhlutverki var frumsýnd á slandi. Þessa dagana getum við Íslendingar notið þess að sækja jóga tíma hjá henni Önnu.