Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Fegurðardrottning Reykjavíkur verður önnur í Miss Universe 1962

Fegurðardrottning Íslands 1959, Sigríður Geirsdóttir, varð þriðja í keppninni Miss International 1960. Önnu systur hennar var boðið í mikla heimsreisu með henni í tengslum við keppnina og þær dvöldu áfram í Bandaríkjunum eftir að ferðinni lauk.

Önnu var svo boðið að koma heim og taka þátt í Fegurðarsamkeppni Íslands 1962. Anna hlaut annað sætið í keppninni og titilinn Fegurðardrottning Reykjavíkur. Það var reyndar nokkuð umdeilt því Anna átti heima í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi. Hún fór svo fljótlega eftir íslandskeppnina til Flórída, þar sem keppnin um Miss Universe 1962 titilinn fór fram.

Þetta er fyrri kynningarmyndin sem Anna sendi á undan sér til Íslands. En myndir af öllum þátttakendum í Fegurðarsamkeppni Íslands birtust í Vikunni og Fálkanum. (Heimild Vikan).

Hér er seinni kynningarmyndin af Önnu. Keppnin fór fram í Austurbæjarbíó og í Glaumbæ. (Heimild Fálkinn).

Þessi mynd er tekin í forkeppninni í Austurbæjarbíó. (Heimild Sannar Sögur).

Sigríður systir Önnu kom heim og krýndi sigurveigarana. Hér setur hún drottningarborðann á systur sína (Heimild Vikan).

Þetta eru 3 efstu stúlkurnar í Fegurðarsamkeppni Íslands 1962: Anna Geirsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir og Líney Friðfinnsdóttir. Guðrún varð Miss International 1963. Í dag vill svo skemmtilega til að Sigríður er gift bróður Guðrúnar. (Heimild Vikan).

Anna á sviðinu í Miss Universe keppninni á Miami í Florída að keppa í sundbol. Anna stendur lengst til hægri.

Þetta eru 15 efstu stúlkurnar í keppninni og Anna er fyrst frá vinstri, í efstu röð.

Anna er hér til hægri við Normu Nolan frá Argentínu. Til vinstri er Finnska stúlkan, sem varð þriðja í keppninni.

Þessi mynd af Önnu er tekin, rétt eftir að hún hlaut annað sætið í Miss Universe 1962 og er einhverskonar tilvísun til þjóðernis drottningarinnar.

Svo eru nýfundnar myndir af efstu fimm stúlkunum í keppninni. Annars vegar í baðfötum og hins vegar í kvöldkjólum.