Fulltrúi Íslands á Miss Universe 1956
Árið 1956 voru tvær fegurðarsamkeppnir haldnar á Íslandi. Fyrri keppnina sigraði Ágústa Guðmundsdóttir og ber hún titilinn Fegurðardrottning Íslands 1956. Ágústa keppti á Miss World 1956 í London og var önnur íslenska stúlkan sem fór utan í þá keppni. En Miss Universe keppnin, sem hafði verið haldin á Langasandi (Long Beach), í 4 ár, bauð nú Íslandi þáttöku. Sá galli var á gjöf Njarðar að keppendur máttu ekki vera giftir, en Ágústa gifti sig um það leyti, sem hún hlaut sinn titil og Miss World keppnin leyfði giftum konum þáttöku, í byrjun.
Nú þurft því að halda aðra keppni og titillinn sem keppt var um hét Fulltrúi Íslands á Miss Universe 1956. Keppnin fór fram í skemmtigarðinum Tívólí í Vatnsmýrinni. Þar fóru allar fegurðarsamkeppnir fram fyrstu 10 árin.
Allar stúlkurnar í keppninni um titilinn Fulltrúi Ísland á Miss Universe 1956 í samsæti á Ingólfskaffi. En þær komu allar fram í eftirmiðdagskjólum í Tívólí. Fimm efstu stúlkurnar kepptu nokkrum kvöldum seinna og komu þá einnig fram í baðfötum. Þær eru Guðlaug og Jóhanna sem sitja lengst til vinstri í neðri röð og Rúna, fjórða frá vinstri, í sömu róð. Hinar tvær eru Þórdís og Margrét, sem eru önnur og fjórða stúlkan, frá vinstri, í efri röðinni.
Hér eru svo þær 5 efstu, undir bárujárnsþilinu á sýningarpallinum. Oftast viðraði ekki neitt alltof vel og stúlkunum varð oft ansi kalt, á sviðinu í Tívolí. En þær eru, talið frá vinstri: Þórdís (3), Guðlaug (1), Margrét (4), Rúna (2) og Jóhanna (5). Tölurnar, sem eru innan sviga, segja til um í hvaða sæti þær hlutu í keppninni.
Guðlaug Guðmundsdóttir Fulltrúi Íslands á Miss Universe 1956 að krýningu lokinni.
Rúna Brynjólfsdóttir varð í öðru sæti. Keppti á Miss Europe og Miss World 1957 og vann einna fyrst íslenskra stúlkna erlendis sem sýningarstúlka. Þessi mynd er tekin úr erlendu blaði rétt fyrir 1960.
Hér er Guðlaug komin í keppnina á Langasandi á skautbúningnum og er landi og þjóð til sóma.
Þessi mynd af Guðlaugu birtist í fjölmörgum amerískum blöðum á meðan keppninni stóð.
Þetta eru stúlkurnar í fimm efstu sætum á Miss Universe 1956. Sigurvegarinn er Miss USA 1956, Carol Morris, en Guðlaug komst ekki í úrslit í keppninni.
Hér er Guðlaug í sýningarferðalagi í Kanada á vegum Hildu hf árið 1980. Verið var að kynna tískuflíkur úr íslenskri ull viða í Kanada og Bandaríkjunum. Guðlaug er lengst til vinstri í efri röðinni. Næst kemur Fegurðardrottning Íslands 1978, Halldóra Björk Jónsdóttir, sú þriðja er Anna Björk Eðvarðs Fegurðardrottning Íslands 1977 og að lokum Ragna Ragnars, Fegurðardrottning Íslands 1955. Fyrir framan krjúpa þau Unnur Steinsson, sem var þá nýlega krýnd Fulltrúi Ungu Kynslkóðarinnar 1980 og Sigurður, sem var farastjóri ferðarinnar.
|