María Guðmundsdóttir
María Guðmundsdóttir ljósmyndari var frægasta ljósmyndafyrirsætan sem Ísland hefur átt. Ferillinn var glæstur og óvenju langur. María var Fegurðardrottning Íslands 1961 og var uppgötvuð af Dorian Leigh á götu í París.
Dorian Leigh var fyrrum fyrirsæta og rak á þessum tíma umboðsskrifstofu fyrir fyrirsætur í París. Guðrún Bjarnadóttir var einnig skráð hjá Umboðsskrifstofu Dorian Leigh.
Hér á síðunni eiga eftir að birtast margar myndir af Maríu. Þessar myndir sem hér birtast koma frá Guðnýju Þórarinsdóttur hjá Birtingi. Þetta eru myndir úr bæklingi frá Reynolds og hinsvegar frönskum prjónablöðum.
Reynolds gaf út verðlista yfir íslenskar ullarvörur, á þessum tíma. Myndirnar eru teknar á tímabilinu 1962-1972.
María er búsett hér á landi, í dag. Hún hefur haldið sýningar á verkum sínum bæði hér á landi og erlendis. María er ættuð úr Strandasýslunni
og myndirnar hennar þaðan hafa vakið hvað mesta athygli.
|
|