Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Inga Eygló varð önnur í fegurðarsamkeppninni 1960

Inga Eygló Arnadóttir varð önnur í Fegurðarsamkeppni Íslands 1960. Það var síðasta fegurðarsamkeppnin í Tívólí skemmtigarðinum í Vatnsmýrinni. Inga Eygló var þá þegar flutt af landi brott. Hún hefur átt spennandi og viðburðaríka æfi og er þekkt í Kaliforníu og víðar fyrir unglegt og glæsilegt útlit. Guðný Helga Árnadóttir, systir Ingu Eyglóar, sendi mér þessar myndir og læt ég hennar texta fylgja hér með:

 

Hér koma nokkrar myndir af Ingu systir.  Myndirnar á sundbolum eru frá Noregsdvöl hennar eða frá þeim tíma sem hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni hér heima.  Vann hún þá stundum sem fyrirsæta meðfram vinnu hjá Flugfélaginu.  Á þeim tíma var hún einnig kosin stúlka mánaðarins hjá einhverju herra blaði.  Ég finn bara því miður ekki þær úrklippur.  Leikfimimyndirnar eru úr bókinni Every body is beautiful sem gefin var út 1978 í U.S.A.  Inga er afar aktív enn í dag og tekur þátt í sundmótum fyrir öldunga og ýmsu öðru.  Um daginn kom hún heim með fjögur gull sundkeppni og vann sér þar með þátttökurétt í stóru móti fyrir öldunga sem haldið verður 2009.  Nokkurskonar Olimpiu mót aldraðra.  Nú um helgina þ.e. föstudag og laugardag tók hún þátt í áheita hjólreiðum fyrir MS sjúklinga.  Fyrri daginn hjólaði hún 75 mílur þann seinni 42 mílur.  Svo þú sérð að hún er enn í fullu fjöri og fer vel með sig.  Vona að þú getir notað þessar myndir.

 

Svo eru það vinsamleg tilmæli að fleiri, sem luma á svona spennandi myndum láti brúðarsíðuna njóta þeirra og netfangið er hj@finna.is