Guðný Svava
Þessi fallega stúlka lenti í fimmta sæti í Fegurðarsamkeppni Íslands árið 1965. Þótti mörgum undarlegt að hún skildi ekki hljóta hærra sæti. Hún varð seinna ein vinsælasta sýningarstúlkan í Módelsamtökunum.
Myndirnar af henni eru dálítið merkilegar vegna þess að miklu verri mynd birtist í Vikunni þegar stúlkurnar voru kynntar þar. Guðný hafði sjálf valið þessa en aðstandendur keppninnar birtu aðra. Svo eru tvær myndir af Guðnýju frá Módelsamtakatímabilinu.
Guðný Svava er listakona og hefur nýverið verið með spennandi listsýningu í Gerðubergi og heitir í dag, Guðný Svava Strandberg.
Fyrir þá sem langar að sjá meira um fegurðarsamkeppnir er til sérvefurinn, Vinir Fegurðarsamkeppni Íslands. Þar er ég með mína eigin síðu.
Myndin sem birtist á forsíðu Vikunnar og Guðný var aldrei ánægð með.
Myndin sem Guðný hafði sjálf valið til að fara á forsíðuna.
Mynd úr Vikunni sem var ein af kynningarmyndunum af keppendum áður en keppnin fór fram.
Fyrirsætumynd, takið eftir augnhárunum sem eru máluð á húðina undir augunum. Þetta var Twiggy-tískan í augnförðun.
Falleg mynd af Guðnýju.
|
|