Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Fyrsta Fegurðardrottning Íslands

Fyrsta keppnin um titilinn Fegurðardrottning Íslands var haldin í Tívólígarðinum í Vatnsmýrinni árið 1954.  Það var ekki fyrr en ári seinna að keppendur voru sendi á alþjóðlegar fegurðarsamkeppnir erlendis. Fegurðardrottningin fékk þó ferð með uppihaldi, eins og það var kallað, til Parísar.


Þetta er í eina skiptið sem keppendur í Fegurðarsamkeppni Íslands komu ekki fram í baðfatnaði.

Sigurvegarinn og fyrsta fegurðardrottningin yfir Íslandi var Ragna Ragnars frá Akureyri. María Jónsdóttir, sem einnig kom frá Akureyri varð í öðru sæti og Reykjavíkurstúlkan Jóhanna Heiðdal varð þriðja.

Ragna nýtti sér Parísarferðina til frönskunáms. Hún hefur verið Sendiherrafrú Íslands víða um heim en maðurinn  hennar er Ólafur Egilsson.



Keppendur og dómnefnd í Fegurðarsamkeppni Íslands 1954. Á myndinni þekki ég Bjarna Konráðsson lækni, Þórunni Hafstein og Sigurð Magnússon úr dómnefndinni. Ragna er fyrir miðju, í efri röð og María næstyst til hægri. Jóhanna er lengst til hægri í neðri röðinni. Mynd úr Tímaritinu Hauki.

 

Ragna Ragnars er hér á sýningarferðalagi í Kanada uppúr 1980 með fleiri fegurðadrottningum. Unnur (Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1980, Ragna Ragnars, Anna Björk, Fegurðardrottning Íslands 1977, Guðlaug, Fulltrúi Íslands á Miss Universe 1956, Sigurður Fararstjóri og Halldóra Björk, Fegurðardrottning Íslands 1978. 
 
 
 
Hér er mynd af Rögnu með börnin sín, sem birtist í Vikunni árið 1964.




Þessi mynd af Rögnu er tekin um það leyti, sem hún var kjörin fegurðardrottning. Aziz ljósmyndastofan. 




Þrjár efstu stúlkurnar í keppninni. María, Ragna og Jóhanna. Myndin er úr bókinni Brosað í Gegnum Tárin.