Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Fulltrúi ungu kynslóðarinnar

Fyrr á árum, eða allt frá 1967 og framyfir 1980 voru Fulltrúar Ungu Kynslóðarinnar valdir. Fyrstu árin á vegum Karnabæjar og voru þá haldnir stórir og Rokk og Pop Tónleikar í leiðinni.

Síðar snérist þetta meira um að velja fulltrúa Íslands á Miss Young International keppnina. Henný Hermannsdóttir sem tók þátt í keppninni hér heima án þess að komast í úrslit sigraði svo þessa alheimsfegurðarsamkeppni. Hún var sérstaklega valin af umboðsmanni keppninnar til fararinnar til Japan.

Hér á eftir fylgja nokkrar myndir af keppendum og sigurveigurum í þessarri keppni. Myndirnar eru fengnar að láni hjá Vikunni og tiltölulega nýútkominni bók um fegurðarsamkeppnir sem heitir Brosað í Gegnum Tárin.




Stúlkurnar sem kepptu til úrslita árið 1967. Ásta (2), Kristín (1) og Kolbrún (3). Kristín hlaut 4. sætið í Fegurðarsamkeppni Íslands 1970 og Kolbún annað sætið árið 1972.

  
Kristín Waage Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1967 á tískumynd fyrir Karnabæ.

 
Soffía Wedholm Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1968.


Þorbjörg Magnúsdóttir Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1969.


Guðbörg Haraldsdóttir Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1970.



Unnur Steinson Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1980 og í 4. sæti á Miss Young International sem haldin var í Manilla á Filippseyjum.



Kolbrún Anna Jónsdóttir Fulltrúi Ungu Kynslóðarinnar 1982.