Fegurðarsamkeppnin 1969
María Baldursdóttir, söngkona og eiginkona Rúnars Júlíussonar varð Fegurðardrottning Íslands 1969. María keppti á Ungfrú Evrópa, Miss Universe og varð í þriðja sæti í Ungfrú Norðurlönd. Ragnheiður Pétursdóttir, sem er nýlátin varð önnur og keppti í Miss World í London. Dagmar Gunnarsdóttir, Ágústa Gunnarsdóttir og Erla Harðardóttir deildu þriðja sætinu, en Erla var svo valin til að fara í Miss International keppnina og komst þar í undanúrslit.
Stúlkurnar 5 á sviðinu í Klúbbnum.
Ágústa, Dagmar, María, Ragnheiður og Erla.
María og Rúnar fyrir nokkrum árum.
María í Ungfrú Norðurlönd.
María með öllum hinum keppendunum, þar á meðal Erlu Harðardóttur í Norðurlandakeppninni.
|
|