Fegurðarsamkeppni Íslands 1962 (hluti 3)
Guðrún Bjarnadóttir var orðin fyrirsæta hjá Umboðsskrifstofu Dorian Leigh í París. Nú var komið að því að fara til Langasands sem fulltrúi Íslands í Miss International keppnina. Þessi keppni var fyrst haldin 1960 og þá varð Sigríður Geirsdóttir í 3. sæti. Árið 1961 var komið að Sigrúnu Ragnarsdóttur að verða númer 5. 1962 komst María Guðmundsdóttir fyrirsæta og ljósmyndari í 15 stúlkna úrslit. Svo kom að Guðrúnu og hún vann keppnina með glæsibrag. Hún var semsagt orðin fyrsta alheimsfegurðardrottningin frá Íslandi. Guðrún starfaði sem fyrirsæta í fremstu röð í áratugi. Í dag býr hún að mestu leyti í Genf.
Tanya Verstac frá Ástralíu, Miss International 1962, krýnir Guðrúnu (Heimild Vikan).
Forsíða Vikunnar rétt eftir sigur Guðrúnar á Langasandi.
Bandarísk tískumynd af Guðrúnu. Hún vann sem fyrirsæta út um allann heim í mörg ár eftir sigurinn.
Ein af hundruðum forsíðumynda af Guðrúnu. Þessi mynd var á forsíðu þýska tískusniðblaðsins Burda.
Þessi birtist með viðtali við Guðrúnu í tímaritinu Heimsmynd seint á síðustu öld og sýnir Guðrúnu á heimili sínu í París.
Guðrún með Stefáni bróður sínum.
Guðrún með Sigmari syni sínum, brúði hans og móður hennar.
|