Fegurðarsamkeppni Íslands 1962 (hluti 2)
Hér eru nokkrar myndir af Guðrúnu Bjarnadóttur frá þeim tíma sem hún varð Fegurðardrottning Íslands 1962 og fram til þess að hún vinnur Miss International keppnina á Langasandi síðsumars 1963. Hún keppti á Ungfrú Norðurlönd og varð þriðja, komst ekki í úrslit á Ungfrú Evrópa en varð númer fimm á Ungfrú Sameinuðu Þjóðirnar sem haldin var Palma á Mallorca.
Þetta er forsíða Vikunnar um það leyti sem Guðrún varð Fegurðardrottning Íslands.
Þessi mynd er tekin fyrir Vikuna og sýnir Guðrúnu máta kjóla sem Dýrleif Ármann saumaði á hana fyrir erlendu keppnirnar. Dýrleif saumaði marga kjóla sem vöktu mikla athygli á alheimsfegurðarsamkeppnum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.
Guðrún hlaut þriðja sætið í Ungfrú Skandinavía keppninni og Auður Aradóttir varð fimmta en það er einmitt sætið sem hún hlaut í Fegurðarsamkeppninni hér heima. Sænska stúlkan sem varð í öðru sæti Norðurlandakeppninnar sigraði Guðrúnu aftur þegar hún varð Ungfrú Sameinuðu Þjóðirnar.
Guðrún var vinsæl fyrirsæta á Íslandi á þessum tíma og fljótlega átti hún eftir að prýða forsíður stærstu og frægustu tískublaða heimsins.
Guðrún var fyrsta fyrirsætan til að gera einkasamning við snyrtivörufyrirtæki og hér er eitt sýnishornið af myndunum fyrir Juvena snyrtivörumerkið frá Sviss.
|