Fegurðarsamkeppni Íslands 1962 (hluti 1)
Fegurðarsamkeppnin 1962 var óvenju spennandi og stúlkunum vegnaði betur erlendis en nokkru sinni fyrr. Keppnin fór fram á tveimur stöðum í Reykjavík. Fyrst komu allar stúlkurnar í keppninni fram í Austurbæjarbíó. Síðan var þeim 6 sem völdust til úrslitakeppninnar ekið á stiga sem festur var við heilmikinn pall. Þessi samsetning með stúlkunum í stiganum og Lúðrasveit Reykjavíkur á pallinum fór svo niður Laugaveginn og út Lækjargötuna að Glaumbæ. En þar fór lokakeppnin fram. Þessari keppni er engin leið að lýsa í einum kafla og verða þeir því nokkrir hér á síðunni. Þætti Önnu Geirsdóttur sem hlaut annað sætið hefur að nokkru verið lýst á kaflanum Miss Universe 1962.
Stúlkurnar í keppninni voru kynntar í tveimur tímaritum, Vikunni og Fálkanum. Þetta er kynningarsíðan um Guðrúnu Bjarnadóttur í Fálkanum.
Þetta eru kynningarmyndirnar af Líney Friðfinnsdóttur í Vikunni.
Líney varð í þriðja sæti keppninnar.
Þetta eru myndir sem voru teknar í Austurbæjarbío af stúlkunum sex, sem kepptu til úrslita síðar um kvöldið, í Glaumbæ. Efst t.v. Guðrún Bjarnadóttir, Anna Geirsdóttir og Líney Friðfinnsdóttir og í neðri röð, frá vinstri eru: Auður Aradóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Guðný Á. Björnsdóttir.
Hér eru stúlkurnar á vagninum fræga, með regnhlífarnar spenntar og rykfrakka yfir sundbolunum, í húðarrigningu. Þessi óskýra, en sögulega mynd er tekin í Lækjargötunni.
Drottningarnar 6, í "cocktail" kjólum, á sviðinu í Austurbæjarbíó. Frá vinstri: Guðrún, Rannveig, Guðný, Líney, Auður og Anna.
|