Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Fegurðardrottning Íslands 1961

María Guðmundsdóttir var krýnd Fegurðardrottning Íslands 1961 á Hótel Borg en forkeppnin fór fram á eftirmiðdagshátið í Austurbæjarbíó. Stuttu seinna var hún uppgötvuð sem fyrirsæta í París. <br><br>Fyrsta verkefnið var myndataka fyrir Coca Cola og auglýsingamyndin birtist á baksíðum allra helstu stórblaða heimsins. Ferill Maríu var glæsilegur og í dag er María virtur ljósmyndari. <br><br>Fyrir þó nokkrum árum kom ævisagan hennar út og varð metsölubók en Ingólfur Margeirsson skráði. Bókin heitir einfaldlega María og er oft fáanleg á fornbókasölum bæjarins.



Stúlkurnar fimm, semkepptu til úrslita á Hótel Borg. Talið frá vinstri: Þuríður Magnúsdóttir (4), Kristjana Magnúsdóttir (2), María Guðmundsdóttir (1), Kolbrún Kristjánsdóttir og Anna Harðardóttir (5). Anna var fyrsta íslenska stúlkan til að hljóta titilinn "Besta Ljósmyndafyrirsætan". Blaðaljósmyndarar og myndatökumenn velja jafnan stúlkuna, sem hlýtur þennan titil. 


   

Þetta er kynningarmyndin af Maríu, fyrir keppnina í Vikunni. Kynningarmyndirnar af henni unnu til verðlauna í alþjóðlegri keppni tískuljósmyndara. Þarna er María alfarið óvön að sitja fyrir á myndum.

  

Önnur kynningarmynd af Maríu úr Vikunni.

 


Þetta er forsíðan á aukablaði, sem Vikan gaf út daginn eftir keppnina.

 


Þetta er mynd, sem tekin var til að fylgja þáttökupappírunum vegna Miss International keppninnar á Langasandi, en þar komst María í 15 stúlkna úrslit. 




Þetta er auglýsingamyndin fyrir Coca Cola sem var byrjunin á fyrirsætuferli Maríu. Þessi mynd er fengin að láni úr bókinni María.