Fegurðardrottningarnar hans Heiðars 

Fegurðarsamkeppnir á Brúðurin.is

Heiðar Jónsson á ótrúlega mikið safn mynda og upplýsinga um fegurðarsamkeppnir. Þar sem ætla má að margir viðskiptavinir www.brudurin.is, gætu haft ánægju af því að kíkja á eitthvað af þessu hefur verið ákveðið að hafa hér sérstaka kynningarsíðu um þetta efni.

Á endanum verður þetta vonandi heilmikil myndabók. Nýjir kaflar verða settir hér inn á nokkurra vikna fresti. Þetta verður ekki í neinni tímaröð og íslenskar fegurðarsamkeppnir verða í aðalhlutverki hjá okkur en einhverjar skemmtilegar sögur frá erlendum keppnum slæðast svo með í aukahlutverkum.

Ef einhver á skemmtilegar myndir af íslenskum fegurðardrottningum erlendis, væru þær vel þegnar og sendist á hj@finna.is.

Heiðar Snyrtir að taka viðtal við Cindy Breakspeare, Miss World 1976, á Hótel Sögu. Cindy var heiðursgestur Fegurðarsamkeppni Íslands 1977 og Heiðar var kynnir keppninnar.

Fimm efstu stúlkurnar í Miss Universe 1957 var kveikjan að safni Heiðars. Þá var hann 9 ára. Bryndís Schram tók þátt í þessari keppni, fyrir Íslands hönd.