Hefðir Giftingahringurinn er tákn eilífðarinnar. Hann á sér engan endi. Upphaflega voru hringarnir fléttaðir úr grasi og þurfti að endurnýja þá reglulega. Það var sagt að hringurinn myndi vernda brúðina frá öllu illu. Það tíðkaðist að hafa hringinn á löngutöng vinstri handar, því fólk trúði því að á þeim fingri væri...
Gamalt, nýtt, blátt og lánað
Hin aldagamla hefð um að brúður skulið bera eitthvað gamalt og eitthvað nýtt, einhvern lánshlut og eitthvað blátt, á uppruna sinn að rekja til ensku rímunnar góðkunnu.
Something old, something new
Something borrowed, and something blue.
...
Brúðkaupsafmæli
Það er alltaf gaman að eiga afmæli og eftir brúðkaupið er sjálfsagt að minnast þessara tímamóta á ári hverju. Þá er upplagt að hafa þema hvers brúðkaupsafmælis í huga og gefa makanum litlar gjafir með það í huga.
1 ár - pappírsbrúðkaup
2 ár -...
Hjátrú og siðir frá öllum heimshornum
Að bera brúði sína yfir þröskuldinn er gamall og góður siður sem táknar að brúðguminn vilji bera konu sína yfir alla þröskulda (erfiðleika) í lífinu og vernda hana.
Að dreifa hrísgrjónum yfir brúðhjón að vígslu lokinni er ósk um frjósamt og farsælt líf.
Að hafa brauðmat...
Þótt ég talaði tungum manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur,
hreykir sér ekki upp.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni,
en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt,
trúir öllu,
vonar allt,
umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.