HEILLARÁÐ
Þegar þú gerir kostnaðaráætlunina fyrir brúðkaupið þitt, gerðu þá fyrst lista yfir allt það, sem þú getur engan veginn verið án. Hafðu svo annan lista með öllu því, sem þig langar, en er ekki eins nauðsynlegt. Sem betur fer, fást oft betri verð og samningar, en ráðgert var í byrjun og þá er svo ofsalega gaman að fara á lista númer tvö.

Fyrirtæki og þjónustuaðilar

Undirbúningur
Ljósmyndarar, Bílaleigur, Kirkjur, Veisluþjónusta og salirHringarnir, GjafavöruverslanirBrúðkaupsferð, Brúðkaupsnótt, Boðskort

Veisla
Veisluþjónustur og salir, Veitingar, Vín, Tónlist, Hljóðkerfi, Borðbúnaður

Heilsa og fegurð

Snyrtistofur og spa, HárgreiðslustofurSólbaðsstofur

Hjónakornin og heimilið
Kynlíf, BrúðkaupsnóttMorgungjöf, Húsbúnaður  

Athöfn
Kirkjur, Sýslumaður, Trúfélög

Föt og fylgihlutir
Brúðarkjólaleigur og verslanir, Skartgripir, Fata- og tískuverslanir, Klæðskerar og kjólameistarar

Brúðkaupsferð
Ferðaþjónusta, Hótel 

Blóm og skreytingar
Blómaverslanir, Gjafavöruverslanir, Boðskort

Brúðurin.is - Heilmikið um brúðkaup, fyrir og eftir


Klæðilegt hálsmál, fyrir mismunandi vöxt.

Vandaðu valið á halsmálinu, með tilliti til hvernig skart þú kemur til með að bera og einnig hvaða hárgreiðsla verður fyrir valinu.

 

Bateau

Þetta háa en flegna hálsmál liggur út á axlirnar og fylgir viðbeininu að framan.
Gott fyrir þær sem hafa beinabera bringu og/eða lítinn barm.
Passar ekki fyrir mikinn barm.

 

Off-The Shoulder

Sýnir vel bringubein og axlir.
Fallegt fyrir barmmiklar konur, sem geta notað hlýralausa brjósthaldara (Glærir hlýrar gætu verið bjargvætturinn hér).
Klæðir ekki breiðar axlir.

 

Halter

Hlýrarnir eru bundnir fyrir aftan hálsinn og oft með alveg beru baki.
Passar þeim sem hafa fallegar axlir.
Klæðir ekki breiðar né litlar axlir og byggir á að ekki þurfi mikinn stuðning undir brjóstin. (Þar gæti lausnin verið glærir hlýrar á brjósthaldarann).

 

Illusion high

Þetta hálsmál byggir á blúndu eða gegnsæju efni sem leggst vel að bringunni og er oftast bryddað með satínrönd sem minnir á “choker” hálsmen. Passar á mjög fína kjóla og er kynþokkafullt á dömulegan hátt.
Sérstaklega góð lausn fyrir beinabera bringu.

 

Portrait

Mjúklega flegið U-hálsmal með fellingu frá öxlum og meðfram að framan og jafnvel að aftan líka.
Sýnir vel fallag viðbein og bringu.
Klæðir ekki þykkan háls og bringu og ekki heldur beinabera.

 

Scoop

Þetta U-línu lagaða hálsmál er lika kallað “ballerina”. Getur verið mikið flegið, ef vill.
Klæðir allann vöxt.

 

Strappy

Hlýrarnir liggja beint frá framstykki og yfir axlirnar í bakstykkið.
Klæðir stinna og fallega handleggi.
Ekki fyrir barmmiklar konur.

 

Square

Alveg þvert og ferkantað.
Sérstaklega fallegt fyrir barmmiklar konur.
Klæðir flestalla.

 

Strapless

Bæði beint og einnig með spíssum til hliðanna.
Klæðilegt fyrir breiðar og þykkar axlir.
Barmlitlar konur, en fylltur brjósthaldari getur bjargað málunum.

 

Sweetheart

Hjartalaga og flegið og dregur athyglina að barminum.
Flottan barm.
Nýtur sín ekki nema að barmurinn sé góður.

<< til baka


KYNNINGARSÍÐUR
Sérverslun með samkvæmisfatnað.
Allt til gjafa fyrir falleg heimili.