Augnakonfekt er ný gjafavöruverslun, sem er að Laugaveg 95, sími 552 9922. Listamaðurinn Kolbrún Róbertsdóttir verður með Galleríið sitt á sama stað. Þarna er hægt að fá allt til gjafa og fyrir falleg heimili. Borðbúnaður frá frægum hönnuðum og margrómuðum fyrirtækjum, eins og Mikasa, sem hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi.
Persónuleg þjónusta og svo sérstaklega skilmerkileg og einföld netverslun, eru það, sem gerir Augnakonfekt svo velkomna viðbót í þessa flóru viðskiftaheims landsinns. Við getum keypt olíumálverk, sem er varla þurrt, beint af trönunum hjá henni Kolbrúnu og valið svo fallegan skrautmun frá Gustav Klimt. Bætt við matar og kaffistelli frá Mikasa. Svo eru skartgripaskrín fyrir fermingarnar og kristalsskálar til að setja vígða vatnið í, til skírnarinnar.
Augnakonfekt er til staðar á Laugaveg 95 og er konfektið, sem alltaf passar þegar halda skal hátið.