|
|
|
Undirbúningur
Ljósmyndarar, Bílaleigur, Kirkjur, Veisluþjónusta og salir, Hringarnir, Gjafavöruverslanir, Brúðkaupsferð, Brúðkaupsnótt, Boðskort
Veisla
Veisluþjónustur og salir, Veitingar, Vín, Tónlist, Hljóðkerfi, Borðbúnaður
Heilsa og fegurð
Snyrtistofur og spa, Hárgreiðslustofur, Sólbaðsstofur
Hjónakornin og heimilið
Kynlíf, Brúðkaupsnótt, Morgungjöf, Húsbúnaður
|
Athöfn
Kirkjur, Sýslumaður, Trúfélög
Föt og fylgihlutir
Brúðarkjólaleigur og verslanir, Skartgripir, Fata- og tískuverslanir, Klæðskerar og kjólameistarar
Brúðkaupsferð
Ferðaþjónusta, Hótel
Blóm og skreytingar
Blómaverslanir, Gjafavöruverslanir, Boðskort
|
Ráðleggingar um brúðarilmvatnið
Hvernig veljum við Brúðarilminn?
Takið frá tíma til að velja ykkur ilmvatn frá viðurkenndum hönnuði fyrir daginn stóra. Þetta þarf að vera ilmur, sem minnir ykkur á þennan dag ævilangt. Roja Dove ilmvatnshönnuður sagði: “Ilmvatnið er eitt af því, sem brúðhjónin geyma að velja sér fram á síðustu stund. Það er búið að velja blómin, kjólinn, smókingfötin, tónlistina, matinn, hárgreiðsluna og jafnvel förðunina. Svo gleymist að ilmur, er nokkuð sem minnir okkur á atburði liðinna tíma ævilangt og ætti því að vera eitt af því, sem skiftir mestu máli að velja rétt og vel.”
Ilmur og angan er eitthvað, sem getur kallað fram minningar lykilstunda ævinnar. Þannig að upplifunin er eins og að horfa á kvikmynd af löngu liðnum atburðum. “Skilningarvitið að upplifa angan, er eitt það mikilvægasta og kallar fram minningar um löngu liðna atburði,” segir ilmvatnsgerðarkonan Jo Malone “notið ilm, sem þið njótið að bera á brúðkaupsdeginum ykkar og minningarnar verða skýrari, en nokkur ljósmynd.”
Roja Dove, segir einnig: “Hvernig ilm þú velur þér, segir heilmikið um þig. Gefur öðrum meiri skil á þér og þínum persónuleika. Ekki hafa vinkonuna, eða mömmu með þér í snyrtivörudeildina. Ilmvatnið þitt er of persónulegur hlutur til að verða fyrir áhrifum annarra, þegar það er valið. Munið svo að hafa ekkert ilmvatn á ykkur, þegar þið farið að velja ykkur réttu anganina”.
- Ekki dæma ilminn strax og hann kemur úr flöskunni. Það er bara toppnótan, sem þú finnur og svo spíralyktin af vínandanum, sem heldur ilmvatninu fersku, í glasinu. Ilmurinn þarf að fara og vera á þinni eigin húð. Það má eiginlega segja að húð hvers og eins, sé einn þáttur hvers ilmvatns.
- Sprautið á ykkur úr prufuglasinu og farið svo og verslið og skoðið aðra hluti, í að minnsta kosti eina klukkustund. Þetta er sá tími, sem ilmvatn þarf til að gera sig, á og í húðinni.
- Ekki prófa margar tegundir í einu. Alls ekki fleiri en þrjár og ef ykkur finnst að þið séuð að ruglast er gott ráð að lykta af kaffibaunum. En það hreinsar nasaveggina.
Hvernig er svo best að nota ilmvatn?
Lag yfir lag (þrjár hæðir og þurrkloft), er galdurinn. Hér eftir fara nokkrar gullnar reglur, í ilmvatnsnotkun. Semsagt frá augnablikinu, sem þið játist hvort öðru og þar til að þið dansið lokadansinn í veislunni.
- Ef það er til baðlína í ilminum, endilega eignist hana líka. Freyðibað, sturtusápu eða líkamskrem.
- Eftir að baða ykkur í ilminum, berið ilminn á úlnliðinn, olnbogabótina, bak við eyrun, neðantil í hálsakotið, milli brjóstanna, efst í nárann og í hnésbæturnar.
- Setjiði Body Lotion á ykkur síðast, en það bindur ilminn betur við húðina og hann endist miklu lengur.
- Sprayið ilminum í hárburstann, örlítið á undirfötin og í fóðrið á kjólnum og að lokum í smáský yfir höfðinu og gangið svo inn í skýið.
- Svo er lítið töskuspray ómissandi, til að geta frískað ilminn, af og til í dagsinns önn.
Hér eru nokkur ilmvötn, sem koma vel til greina við brúðarskartið...
Ilmir fyrir Brúðgumann:
- Eau Freiche frá Gianni Versace.
- Ferre for men frá Gianfranco Ferre
- Allure Sport frá Chanel
- Very Irresistable for men frá Givenchy
- Black frá Roberto Cavalli.
Ilmir fyrir brúðina:
- Bright Crystal frá Gianni Versace
- Versace frá Gianni Versace
- Amarige Marriage frá Givenchy
- Burberry Sheer frá Burberry
- Burberry London frá Burberry
- Nina frá Nina Ricci
- Mediterrainien frá Elizabeth Arden
- Chance Eau Fraiche frá Chanel
- L´instant Magic frá Guerlain
Heiðar Jónsson
|
<< til baka
|
|
|
Sérverslun með samkvæmisfatnað.
Allt til gjafa fyrir falleg heimili.
|